


Hin árlega Vísindavaka Rannís fór fram síðastliðinn föstudag í Háskólabíó á degi evrópska vísindamannsins.
Að þessu sinni tók Tilraunastöð H. Í í meinafræði að Keldum þátt í Vísindavökunni og kynnti þar stafsemi sína og nokkrar áhugaverðar rannsóknir með ýmsum hætti.
Ungir og aldnir mættu á staðinn og var mikill áhugi og nóg að skoða.
Á sýningarbási Keldna var m.a. hægt að skoða: lifandi ál í búri, veggjalýs í víðsjá, ræktunarskálar með bakteríugróðri, sníkjuorma úr hestum og fleira og fleira.

Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi.

