


Vísindadagurinn er eins dags ráðstefna og er nú haldin í fimmta sinn.
Starfsmenn Tilraunastöðvarinnar og nemendur í rannsóknanámi kynna rannsóknir og niðurstöður ýmissa rannsókna sem unnið er að á Keldum, bæði með fyrirlestrum og veggspjöldum.
Ráðstefnan er ókeypis og öllum opin. Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirlestra verða birtar hér á síðunni þegar nær dregur.