Um Keldur



 

Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er háskólastofnun sem tengist læknadeild en hefur sérstaka stjórn og sjálfstæðan fjárhag.

 Starfsemin er mjög fjölþætt og aðferðum margra fræðigreina er beitt í grunn- og þjónusturannsóknum, þ.e líffærameinafræði, örverufræði, ónæmisfræði, sníkjudýrafræði, lífefnafræði og sameindalíffræði.

  • Tilraunastöðin að Keldum tók til starfa haustið 1948
  • Hlutverk hennar er tilgreint með lögum nr. 67 frá 1990, og lögum nr. 50 frá 1986 um rannsóknir á fisksjúkdómum
  • Tilraunastöðin að Keldum er háskólastofnun, tengd Háskóla Íslands
  • Hún heyrir undir menntamálaráðuneyti
  • Keldur hafa sérstaka stjórn og sjálfstæðan fjárhag
  • Í stjórn Keldna sitja fulltrúar læknadeildar, raunvísindadeildar, landbúnaðarráðuneytis og starfsmanna
  • Að Keldum starfa að jafnaði 60 manns
  • Keldur eiga í miklu rannsóknasamstarfi við innlenda og erlenda aðila
  • Rannsóknaverkefni eru fjármögnuð með innlendum og erlendum styrkjum