Rannsóknarstofa í dýrafræði



Starfslið sníkjudýradeildar sinnir margvíslegum þjónusturannsóknum fyrir eigendur húsdýra og gæludýra, sem og heilbrigðisyfirvöld dýra og manna.

Helstu þjónusturannsóknir:

Leit að og greining sníkjudýrasýkinga í búfé og heimilisdýrum fyrir dýralækna, bændur og einstaklinga.

Leit að og greining sníkjudýra í dýrum sem flutt eru inn í gegnum einangrunarstöðvar. Þjónusturannsóknunum fylgir talsverð ráðgjafarstarfsemi.

Sníkjudýrarannsóknirnar beinast einkum að ákvörðun tegundanna sem hlut eiga að máli, meta smitmagn og miðla upplýsingum um líffræði tegundanna til eiganda, dýralækna eða lækna sem síðan taka ákvörðun um meðhöndlun.

Meindýragreiningar eru að mestu bundnar við ákvörðun nagdýrategunda en ýmsar aðrar stofnanir  sjá um greiningar á meindýrum í gróðri, húsum, matvælum og ýmsum varningi.

 

Grunnrannsóknir:
Rannsóknir á sníkjudýrum og sníkjudýrasýkingum í búfé, heimilisdýrum, villtum dýrum og mönnum.

Verulegur hluti rannsóknanna er í samvinnu við aðra innlenda og/eða erlenda vísindamenn. Grunnrannsóknum fylgja kynningar á niðurstöðum á fundum og ráðstefnum og greinaskrif.

 

Starfslið rannsóknarstofunnar

Karl Skírnisson        Dr. rer.nat

Matthías Eydal         B.Sc

Sigurður H. Richter     Cand. Scient.

Auk þess stundum starfsfólk á rannsóknastyrkjum eða nemendur í námsverkefnum við Háskóla Íslands