


Sérfræðisvið Páls var vistfræði spendýra. Hann var í samstarfi við sérfræðinga Tilraunastöðvar HÍ í meinafræði að Keldum. Páll sat einnig í stjórn Tilraunastöðvarinnar í hartnær áratug.
Páll lauk B.Sc. (Honours) prófi frá Lífeðlisfræðideild Háskólans í Dundee í Skotlandi 1975 og doktorsprófi frá Dýrafræðideild Oxford-háskóla 1984. Doktorsverkefni Páls fjallaði um atferði og vistfræði íslenska melrakkans.
Hann var veiðistjóri 1985-1995 en þá var hann ráðinn prófessor við Líffræðiskor Háskóla Íslands (nú Líf- og umhverfisvísindadeild) og gegndi því starfi til dauðadags. Páll var afkastamikill fræðimaður og eftir hann liggur fjöldi fræðigreina í íslenskum og erlendum tímaritum. Hann var ásamt öðrum ritstjóri fræðibóka um íslensk spendýr og um Þingvallavatn, en sú bók kom út bæði á íslensku og ensku. Eftir hann liggur einnig bók um dvöl hans við refarannsóknir í Ófeigsfirði, smásagnasafn, gamanleikrit og myndabók með ítarlegri frásögn af ferli refarannsókna á Hornströndum.
Auk starfa sinna sem prófessor sinnti Páll mörgum störfum í þágu hins opinbera, háskóla, fagtímarita og fagfélaga, bæði hérlendis og erlendis. Hann var virtur vísindamaður á alþjóðavísu og fékk ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín.
Eftirlifandi eiginkona Páls er Dr. Ástríður Pálsdóttir sameindalíffræðingur, en hún starfar á Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. Synir þeirra eru Hersteinn Pálsson rafmagnsverkfræðingur og Páll Ragnar Pálsson tölvunarverkfræðingur.
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum sendir fjölskyldu Páls einlægar samúðarkveðjur og minnist hans með virðingu.