


Dagana 11.-12. nóvember 2011 hélt Líffræðifélag Íslands ráðstefnu um líffræðirannsóknir, en þær eru á tveggja ára fresti. Fjöldi og fjölbreytni erinda og veggspjalda var mikill, en 158 rannsóknir voru kynntar á ráðstefnunni, 82 erindi og 76 veggspjöld.
Umtalsvert framlag var frá starfsmönnum Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, 17 erindi og 12 veggspjöld.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna og ágrip af öllum erindum og veggspjöldum eru á vef Líffræðifélags Íslands (www.biologia.hi.is ) og skráningarvefnum (http://lif.gresjan.is/2011/).