Þann 10-12. júní 2026 var 48. málþing félags norræna dýrameinafræðinga (Nordic Society for Veterinary Pathology (NSVP)) haldið í Reykjavík í samvinnu við dýrameinafræðinga í Danmörku.
Málþing NSVP er haldið ár hvert, og skiptast aðildarlöndin á að standi fyrir því. Þetta er í annað sinn sem málþingið er haldið hér á landi; síðast var það árið 2008.
40 manns sóttu málþingið og voru þeir frá Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Eistlandi og Lettlandi. Fimm aðilar frá meinafræðideild Keldna sóttu málþingið í ár.
Málþingið var með tvo gestafyrirlesara:Charlotta Oddsdóttir, deildarstjóri sýkla- og meinafræðideildar Keldna, fjallaði um sauðfjárhald á Íslandi og rannsóknir á sjúkdómum í íslensku sauðfé. Sigríður Björnsdóttir, prófessor í hestafræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands, fjallaði um hestahald á Íslandi og sjúkdóma í íslenskum hrossum.
Mikilvægur hluti málþinganna er vefjameinafræðinámskeið þar sem farið er yfir greiningarniðurstöður sjúkdómstilfella. Nokkru fyrir málþingið eru vefjasneiðar sendar á milli landa og málþingsgestir koma með sínar tillögur að sjúkdómsgreiningum sem svo eru ræddar á málþinginu. Tilgangur þessa hluta málþingsins er bæði að kynna áhugaverða og oft nýja sjúkdóma og greiningaraðferðir, en er einnig mikilvægur liður í þjálfun ungra dýrameinafræðinga.
Þema málþingsins í ár var meinafræði öndunarfæra.