Afmæliskaffi til heiðurs Sir David Attenborough
Í dag á Sir David Attenborough afmæli. Nú eru liðin 100 ár frá fæðingu þessa merka manns, sem hefur í áratugi haft ómetanleg áhrif á skilning okkar á náttúrunni.
Kynslóðir hafa alist upp við rödd hans og frásagnir sem hafa opnað augu okkar fyrir fegurð, fjölbreytileika og viðkvæmni lífríkisins.
Hann er sönn fyrirmynd sem hefur hvatt okkur til að bera meiri virðingu fyrir jörðinni og vernda hana fyrir komandi kynslóðir.
Það var því vel við hæfi að formaður Líffræðifélagsins og starfsmaður Keldna, Ásthildur Erlingsdóttir, segði nokkur orð áður en starfsmenn Keldna fögnuðu afmælinu með köku.