


Elliðaárnar hafa verið ein af lykilám í vöktun á lífríki straumvatna hérlendis á þriðja áratug. Þar hefur verið fylgst með fiskistofnum vatnakerfisins, laxi, urriða, bleikju og ál. Mest áhersla hefur verið á lífsferil laxins þar sem árlega er könnuð útbreiðsla og þéttleiki seiðaárganga sem og aldur gönguseiða, lengdardreifingu þeirra, holdafar og endurheimtur úr hafi. Þegar laxinn kemur úr sjó er hann talinn upp í árnar.
Eftir niðursveiflu laxastofnsins árabilið 1997- 2004 hefur hann nú rétt við, í kjölfar aðgerða sem gripið var til. Árleg sýni af urriða og bleikju í Elliðavatni veita upplýsingar um framgang þeirra stofna. Tegundasamsetning og fjöldi smádýra er einnig kannaður árlega. Margar aðrar rannsóknir hafa tengst þessari vöktun m.a. á fisksjúkdómum.
Meðhöfundur: Friðþjófur Árnason liffræðingur. Veiðimálastofnun
Erindi haldið fimmtudaginn 24. nóvember 2011 kl. 12:20, í bókasafni Tilraunastöðvarinnar.