Fræðslufundur fimmtudaginn 8.des. kl.12:20 - Útbreiðsla og áhrif PKD-nýrnasýki á villta laxfiskastofna á Íslandi, Árni Kristmundsson fisksjúkdómafræðingur á Keldum



Erindi  haldið fimmtudaginn 8. desember, kl. 12:20, í bókasafni Tilraunastöðvarinnar.

PKD-nýrnasýki, sem orsakast af smásæju sníkjudýri Tetracapsuloides bryosalmonae, er alvarlegur og útbreiddur sjúkdómur í laxfiskum í Evrópu, bæði villtum og í eldi. Dæmi eru um mikil afföll í villtum laxfiskastofnum erlendis, s.s. í Sviss og Noregi. Bleikja er lítið rannsökuð m.t.t. sjúkdómsins. Smittilraunir hafa þó sýnt að hún sé mjög næm fyrir sýkinni.

PKD-nýrnasýki var óþekkt á Íslandi þar til árið 2008 er hún greindist í bleikju úr Elliðavatni. Rannsóknir síðustu 3ja ára benda til þess að sýkillinn sé útbreiddur meðal laxfiska á Íslandi. Há tíðni fiska með alvarleg einkenni sjúkdómsins hefur greinst í vötnum þar sem bleikju hefur fækkað mikið. Líklegt er að PKD-sýki valdi umtalsverðum afföllum og sé því afgerandi áhrifaþáttur í hnignun bleikjustofna þessara vatna.